Í ár eru 10 ár síðan Ís-Forsa samtökin voru stofnuð hér á
landi. Meðal þess sem Ís-Forsa gerir í tilefni tímamótanna er að efna til málþings
þann 12. október n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefni „Samþætting þjónustu - þátttaka og virkni" og tileinkað árangursmati
af samþættingu þjónustu og rannsóknum á sviði starfsendurhæfingar. Á málþinginu
er fjallað um stefnumörkun í málaflokknum, reynslu norðmanna af umbótaverkefni
í velferðarþjónustunni, (NAV), rannsókn á áhrifum samstarfs
í starfsendurhæfingu og skilaboð úr rannsóknum.
Mikilvægt er að fá frekari umfjöllun um þessi mál í ljósi
aðstæðna og reynslu hér og erlendis frá.
Ís-Forsa efnir til málþings þann 12. október, kl. 13.00 - 16.00, á Hótel
Reykjavík Natura (áður Loftleiðir), í þingsal 2.
Samþætting
þjónustu.
Þátttaka og
virkni.
Dagskrá.
13.00 Opnun
málþings og afhending viðurkenninga í
tilefni af 10 ára afmæli Ís-Forsa. Sigríður
Jónsdóttir formaður Ís-Forsa
13.15 Lagasetning
og stefna í starfsendurhæfingarmálum. Guðrún
Sigurjónsdóttir, velferðarráðuneyti
13.30 Integrating
employment and welfare services - ideas and experiences from Norway after 6
years with NAV. Anne Lise Fimreite, prófessor við Háskólann í Bergen.
Stjórnandi árangursmats vegna NAV.
14.30 Kaffiveitingar
15.00 Samanburður
á framkvæmd starfsendurhæfingarúrræða í Þrándheimi og í Reykjavík. Hefur
formlegt samstarf ríkis og sveitarfélags áhrif á framkvæmd starfsendurhæfingar? Erla Björg
Sigurðardóttir, félagsráðgjafi MA og PhD nemi.
15.30 Áhrif
starfsendurhæfingar: Sagan og skilaboð úr rannsóknum hérlendis. Halldór Guðmundsson, lektor
við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Málþingsstjóri: Ellý Alda
Þorsteinsdóttir, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Þátttaka tilkynnist HÉR eða á netfangið gudlaugjona@arborg.is
Þátttökugjald kr. 2500 greiðist
við innganginn (kr. 1000 fyrir háskólanema).
Dagskrá málþingsins er hægt að nálgast hér.
Vinsamlegast áframsendið til þeirra sem málið varðar.
Með góðri kveðju,
Sigríður Jónsdóttir
formaður Ís-Forsa