Stjórn Ís-Forsa veitti í fyrsta sinn viðurkenningu fyrir framúrskarandi meistararitgerð á sviði velferðarmála á árlegu málþingi sínu sem haldið var 11. maí 2010. Sérstök nefnd mat ritgerðirnar sem tilnefndar voru af háskólakennurum. Að þessu sinni var viðurkenningin veitt á aðalfundi Ís-Forsa 21. maí 2015.
Sjö einstaklingar sem luku meistaraprófi í félagsráðgjöf árið 2015 með framúrskarandi árangri voru tilnefndir. Þeir voru Agnes Þorsteinsdóttir Fangar sem afplána dóm fyrir ofbeldisbrot: Úrræði, Halla Dröfn Jónsdóttir Stuðningsúrræði starfsmanna barnaverndar „Þetta er í raun bara það sem hefur alltaf verið gert“, Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir Starfsþjálfun í félagsráðgjöf „raunveruleikinn er bara allt öðruvísi“, Kristjana Gunnarsdóttir Afdrif fólks sem hafur fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu. Eftirfylgd og áhrifaþættir, Unnur Ósk Páldsóttir Þessi endalausa óvissa. Reynsla foreldra í greiðsluvanda, Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Gagnreyndar aðferðir við félagslega ráðgjöf í málefnum aldraðra og Heimir Hilmarsson sem hlaut viðurkenningu Ís-Forsa Reynsla feðra sem ekki deila lögheimili með barni. „Þú átt engin börn“.
Með veitingu viðurkenningarinnar vill stjórn Ís-Forsa stuðla að viðgangi framhaldsnáms á sviði velferðaþjónustu og að viðurkenning fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á meistarastigi geti orðið meistaranemum hvatning og stuðlað að vandaðri nýsköpun þekkingar.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Bergmann, formaður Ís-Forsa, netfang: steinunn@bvs.is