Velferðarvá
– hvernig á að bregðast við kreppu?
Kynning á verkefnum Norrænu velferðarvaktarinnar í Norræna húsinu
fimmtudaginn 17. september 2015 kl. 12.00–13.15.
Verkefnið skiptist í nokkra meginþætti
sem kynntir verða með stuttum framsögum:
Ávarp ráðherra
Eygló
Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og samstarfsráðherra Íslands í
Norrænu ráðherranefndinni.
Hamfarir og hlutverk
félagsþjónustu
Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild
Háskóla Íslands, greinir frá verkefni þar sem sérstök áhersla er lögð á hlutverk
félagsþjónustu sveitarfélaga á tímum hamfara, hvernig megi samhæfa viðbrögð
velferðarkerfa í kjölfar vár og efla viðnámsþrótt einstaklinga og
samfélaga.
Norrænir velferðarvísar – mikilvægi
vöktunar
Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu,
kynnir undirbúning við þróun norrænna velferðarvísa sem koma til með að lýsa
þróun velferðar á Norðurlöndunum.
Fjölþjóðleg rannsókn á viðbrögðum við
kreppum
Stefán Ólafsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild
Háskóla Íslands, fjallar um afleiðingar fjármálakreppa á Norðurlöndunum,
viðbrögð stjórnvalda og árangur af þeim.
Efnahagskreppan 2008 og velferð almennings:
Ísland í evrópskum samanburði
Agnar Freyr Helgason, doktor í
stjórnmálafræði, greinir frá áhrifum kreppunnar 2008 á velferð almennings í
Evrópu og helstu viðbrögðum evrópskra stjórnvalda við kreppunni.
Norræna velferðarvaktin er eitt verkefna í formennskuáætlun
Íslands og er þriggja ára rannsóknarverkefni sem stendur yfir árin 2014–2016 og
miðar að því að styrkja og stuðla að sjálfbærni norrænu velferðarkerfanna.
Kynningin er opin og allir velkomnir. Boðið verður upp á samlokur.
Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið postur@vel.is