Lokaráðstefna
Norrænu velferðarvaktarinnar verður haldin 10. nóvember nk. á hótel Hilton
Nordica. Þar verður kynnt lokaafurð þriggja ára formennskuverkefnis Íslands í
Norræna ráðherraráðinu.
Norræna velferðarvaktin er rannsóknarverkefni
sem unnið hefur verið undir forystu Íslendinga, þeirra Guðnýjar Bjarkar Eydal,
prófessors í HÍ, Stefáns Ólafssonar, prófessors í HÍ og Sigríðar Jónsdóttur,
sérfræðings í velferðarráðuneytinu. Verkefnið miðar að því að rannsaka áhrif
kreppa á velferðarkerfin, bera saman viðbrögð við kreppum, samræma varnir
gagnvart framtíðaráskorunum og þróa norræna velferðarvísa til að auðvelda vöktun
velferðar.
Aðalfyrirlesarar verða prófessor Jonas Pontusson
og prófessor Lena Dominelli sem bæði búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á
þessu sviði.
Hér er krækja á boðsbréf sem sent hefur verið
út http://ministryofwelfare.is/invitation og hér er
krækja á heimasíðu ráðstefnunnar þar sem hægt er að skrá sig www.nww.is.
Þátttökugjald er einungis 2000 kr. og er
hádegisverður og kaffi innifalið í verðinu.
Best er að skrá sig sem fyrst á
heimasíðunni því von er á skemmtilegri ráðstefnu og góðri þátttöku.
Ráðstefnan fer fram á ensku.